|
12 Reynsluspor S.L.A.A
1. Við viðurkenndum vanmátt okkar gegn ástar- og kynlífsfíkn og að okkur var orðið um megn að stjórna eigin lífi.
2. Við fórum að trúa að máttur, okkur æðri, gæti gert okkur andlega heil að nýju.
3. Við tókum þá ákvörðun að láta vilja okkar og líf lúta handleiðslu Guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum.
4. Við gerðum óttalaust, nákvæman siðferðislegan lista yfir skapgerðareinkenni okkar.
5. Við viðurkenndum afdráttarlaust fyrir Guði, sjálfum okkur og öðrum einstaklingi yfirsjónir okkar.
6. Við vorum þess albúin að láta Guð fjarlægja alla okkar skapgerðarbresti.
7. Við báðum Guð í auðmýkt að fjarlægja brestina.
8. Við gerðum lista yfir alla þá sem höfðum skaðað og urðum fús til að bæta fyrir brot okkar.
9. Við bættum fyrir brot okkar, milliliðalaust, þar sem því var við komið, svo fremi það særði engann.
10. Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar okkur skjátlaðist, viðurkenndum við það undanbragðalaust.
11. Við leituðumst við, með bæn og hugleiðslu, að styrkja vitundarsamband okkar við Guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum aðeins um þekkingu á því sem hann ætlar okkur og styrk til að framkvæma það.
12. Við fundum að sá árangur sem náðist, með hjálp reynslusporanna, var andleg vakning og þess vegna reyndum við að flytja öðrum ástar- og kynlífsfíklum þennan boðskap ogfylgjaþessum meginreglum í lífi okkar og starfi
Íslenskaður inngangur Kafli 4 SLAA bókarinnar
12 spora Prógrammið
Leið til Kynferðislegrar og Tilfinningalegrar Edrúmennsku
12 sporin voru upprunalega mótuð af Bill W, einum af stofnendum AA, árið 1938. Þau spruttu upp úr gildum Oxford hópsins (trúarsamtaka sem aðstoðuðu AA til að byrja með í Akron, Ohio) og tóku mið af sameiginlegri reynslu AA félaga af bata á þessum tíma. Þessi spor voru fyrst birt á prenti í Alcoholics Anonymous (1939) og voru útskýrð nánar í Twelve Steps and Twelve Traditions (1953), en báðar bækur voru skrifaðar af Bill W.
Er við birtum hér útgáfu S.L.A.A. af 12 sporunum, viljum við gera það sem AA hafði í huga við upprunalega birtingu þeirra í bókinni Alcoholics Anonymous. Nógu mörg okkar hafa unnið þessi 12 spor til að það sé komin sameiginleg reynslu af bata frá ástar- og kynlífsfíkn. Samtökin eru þó enn lítil og það virðast vera mjög margir sem þurfa bráðnauðsynlega á voninni sem 12 spora aðferðin veitir. Við vonum að fjölskyldur og aðrir sem þjást vegna eyðileggingar virks ástar- og kynlífsfíkils, hætti að kenna sjálfum sér um, eftir að hafa lesið reynslusögur okkar í þessari bók. Hinsvegar er meginmarkmið okkar að ástar og kynlífsfíkillinn sem enn þjáist megi finna leiðina gegnum 12 spora prógrammið, til að snúa baki við sjálfseyðileggingu þessa sjúkdóms, og hann nái að leggja grunninn að andlegum og tilfinningalegum bata.
Framsetning okkar hyggst ekki vera heildstæð eða tæmandi meðhöndlun 12 sporanna frá sjónarmiði S.L.A.A. En við erum að reyna að framsetja þau í nægilegum smáatriðum til að sýna fram á það í hverju batinn frá ástar og kynlífsfíkn felst samkvæmt reynslum okkar.
Ef þú telur við lestur þessarar bókar að S.L.A.A séu samtök sem vert er að íhuga alvarlega fyrir þín eigin vandamál, mælum við með því að þú lesir líka bækurnar Alcoholics Anonymous (sérstaklega kafla 5-7) og Twelve Steps and Twelve Traditions. Okkur hefur fundist þessar bækur, þrátt fyrir einstaka gamaldags hugmyndir og orðaval, koma á óvart í því hversu viðeigandi og gagnlegar þær reynast okkur í því að framkvæma 12 spor S.L.A.A við ástar og kynlífsfíkn. Við setjum orð á borð við "fíkn okkar" eða "ástar- og kynlífsfíkn okkar" í stað beinna tilvísana til áfengisfíknar í þessum bókum.
|