| Loforðin |
|
|
|
|
SLAA LOFORÐIN Ef þú hefur tekið þá ákvörðun að fylgja leiðbeiningunum í prógramminu, þá munt þú smátt og smátt öðlast nýtt líf. Nú verða talin upp loforð, sem verða að veruleika þegar hið nýja líf fær að festa rætur. Loforðin leiða okkur og styrkja í batanum, stundum á svipstundu, stundum á lengri tíma. 1. Við munum öðlast stjórn á lífi okkar. 2. Við munum öðlast reisn og sjálfsvirðingu. 3. Við verðum ekki lengur einmana. Við förum að njóta þess að vera ein. 4. Við hættum að vera þjökuð af stöðugri löngun. 5. Við njótum þess að vera með fjölskyldu okkar og vinum, bæði af líkama og sál. 6. Við förum að sinna áhugamálum og hugarefnum okkar. 7. Ást verður ákvörðun sem tekin er af ábyrgð, en ekki í tilfinningahita sem ber okkur ofurliði. 8. Við munum elska og taka okkur sjálf í sátt. 9. Við munum tengja við annað fólk af heilum hug. 10. Við verðum tilbúin til að víkka út og hlúa að andlegum þroska okkar og annara. 11. Við munum sættast við fortíðina og bæta þann skaða sem við höfum valdið öðrum. 12. Við verðum þakklát fyrir það sem okkur hefur verið gefið, það sem hefur verið tekið burt og það sem var skilið eftir.
|



