Fundir

Nýtt! Netfundir haldnir á Skype!

Mánudaga kl. 20 eru kvenna netfundir

Þriðjudaga kl.21 eru kvenna netfundir

Miðvikudaga kl. 20 eru blandaðir netfundir

Sendið skypenotendanafn á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it til að fá aðgang og aðstoð með að stofna skype reikning (skype er ókeypis hugbúnaður og einfaldur í notkun).

LESIÐ MEIRA UM SKYPE FUNDINA HÉR


Venjulegir fundir á Íslandi

Í hverri viku eru haldnir 5 SLAA fundir í Reykjavík

Kvennafundir eru kl 14:00 á Laugardögum í Tjarnargötu 20, 101 Reykjavík. Nýliðamóttaka fyrir kvennafund kl 13:30.

Nýliðafundir eru kl 17:00 á Sunnudögum í  Héðinsgata 1-3, 101 Reykjavík.

Almennir fundir eru kl 18:00 á Sunnudögum í  Héðinsgata 1-3, 101 Reykjavík.

Almennir fundir eru kl 20:20 á Fimmtudögum í  Héðinsgata 1-3, 101 Reykjavík.

 

Ekki er skylda fyrir nýliða að mæta á nýliðafundi, þeir eru ætíð velkomnir á alla fundi.

Neyðar og upplýsingasímiaSLAA er skipt í tvennt, kvennasíminn er 698-8702 og karlasíminn er 695-8128

Nafnleynd

Nafnleynd er eitt af því sem batinn grundvallast á. Þess vegna eru SLAA-fundir venjulega lokaðir þeim, sem ekki eru haldnir sjúkdómnum og vilja bara svala forvitni sinni. En allir, sem óttast að þeir eigi við þetta vandamál að stríða, eru velkomnir – með því skilyrði að þeir virði nafnleynd viðstaddra. Við höldum trúnað og nefnum engin nöfn SLAA-félaga utan funda.  Nafnleynd er 12.erfðavenja SLAA, en hinar má sjá hér að neðan.

 

12 Erfðavenjur S.L.A.A

1. Sameiginleg velferð okkar situr í fyrirrúmi. Bati hvers og eins byggist á einingu SLAA samtakanna.

2. Hver deild hefur aðeins einn leiðtoga: algóðan guð, eins og hann birtist í deildarsamviskunni. Fyrirsvarsmenn okkar eru aðeins þjónar sem við treystum, ekki stjórnendur.

3. Til að gerast SLAA félagi þarf aðeins eitt: Löngun til að losna undan ástar- og kynlífsfíkn.

4. Sérhver SLAA deild ætti að vera sjálfráða nema í málefnum sem snerta aðrar deildir eða SLAA samtökin í heild.

5. Sérhver deild hefur aðeins eitt meginmarkmið: Að flytja ástar- og kynlífsfíklum sem enn þjást boðskap samtakanna.

6. SLAA deild ætti aldrei að ljá öðrum samtökum eða málstað nafn sitt, fjármagn eða fylgi – svo lausafé, eignir eða upphefð fjarlægi okkur ekki upphaflegum tilgangi.

7. Sérhver SLAA deild ætti að vera algjörlega á eigin framfæri og hafna utanaðkomandi framlögum.

8. Tólfta-spors starf SLAA ætti ávallt að vera í höndum áhugamanna en þjónustumiðstöðvar okkar mega ráða launaða starfskrafta.

9. Deildirnar, sem slíkar, ætti aldrei að skipuleggja, en við getum myndað þjónusturáð eða nefndir, sem ábyrgar eru gagnvart þeim, sem þær þjóna.

10. SLAA deildirnar taka enga afstöðu til annara málefna en sinna eigin, þess vegna ætti aldrei að blanda nafni okkar í opinber deilumál.

11. Stefna okkar í kynningarmálum byggist á aðlöðun fremur en áróðri og skyldum við ætíð varðveita eigin nafnleynd í fjölmiðlum.

12. Nafnleynd er hinn andlegi grundvöllur allra erfðavenja okkar og minnir okkur ætíð á að setja málefni og markmið ofar einstaklingum.

 

 
GlossyLine Website Template by nuvofa - Because Everything's Possible!