2. kafli – Byrjun bata og samtök ástar- og kynlífsfíkla – hluti 7
Fráhvörf og bati Jack, sem hófust í október 1977, voru önnur merk tímamót í sögu S.L.A.A., sem höfðu fram að því haldið áfram frá einum fundi til annars allt frá byrjuninni í desember 1976. Nú var orðið ljóst að aðrir gátu notað hugmyndina um fíkn til að kljást við áráttu- og þráhyggjukennda hegðun í kynferðislegum og tilfinningamálum. Batinn minn var ekki lengur einangrað, einstakt, handahófskennt atvik. Annað fólk átti eftir að ganga í gegnum sína eigin reynslu sem myndi umbreyta þeim sem manneskjur, reynslu sem yrði jafn þýðingarmikil og mín eigin.
Svo ég ljúki í fáum orðum þessari sögu minni af eigin fíknarreynslu og fyrsta mótunarskeiði Samtaka ástar- og kynlífsfíkla®, þar með talin stofnun fyrstu S.L.A.A. deildarinnar þann 30. desember 1976 þá hefur vöxtur og viðgangur S.L.A.A eftir það verið eitt dásamlegt og gjöfult ævintýri.
Lærdómur upphafssögunnar er að það er fjandanum erfiðara fyrir okkur ástar- og kynlífsfíkla að öðlast meðvitund um sjúkdóm okkar. Að efast um eigin viðhorf og hegðun í kynferðislegum efnum og í því hversu háð við erum tilfinningalega annarri manneskju má jafna við að efast um grundina sjálfa sem við stöndum á – gjörvalla sjálfsmynd okkar sem manneskjur. Hugmyndum sem við tökum sem gefnum um heiminn og hlutverk okkar í honum er snúið á hvolf. En ekkert minna dugir til að opna dyrnar að nýju lífi.
Hversu erfitt er að ná og viðhalda þessum skilningi á ástar- og kynlífsfíkn er helsta ástæðan fyrir því að Samtök ástar- og kynlífsfíkla® hafa vaxið hægt. Fjöldi félaga hefur tvöfaldast á ári hverju. Í lok fyrsta árs S.L.A.A. vorum við félagarnir í rauninni tveir, þó í heildina hafi um fimmtán manneskjur látið sjá sig á fundi í eitt eða fleiri skipti á árinu. Í lok annars ársins voru gallharðir félagar orðnir fjórir af þrjátíu og fimm til fjörutíu einstaklingum sem komið höfðu á fund. Í lok þriðja ársins hafði talan tvöfaldast upp í sjö til átta af um áttatíu sem sést höfðu á fundum. Eftir fjórða árið töldum við um það bil fimmtán sem komin voru mislangt í bata, af í kringum hundrað og þrjátíu sem mætt höfðu.
Við getum líka horft á vöxt samtakanna út frá því að í byrjun var aðeins einn mánaðarlegur fundur, en eftir átta ár hafði þeim fjölgað upp í níu fundi á viku í Boston og nágrenni, auk fjölda virkra deilda á svæðinu kringum San Diego og San Francisco auk nokkurra annarra borga í Bandaríkjunum. S.L.A.A. fundir voru líka byrjaðir í Evrópu.
Viðgangur okkar hefur aðallega verið fyrir tilstuðla orða þeirra sem við náðum til persónulega og virtust eiga í vanda á þessu sviði. En eftir því sem tilvist S.L.A.A. hefur spurst út þá hafa fjölmiðlar einnig margoft leitað til okkar sem og fagráðstefnur og aðrir ámóta viðburðir, sem kynnu að hafa dregið samtökin rækilega fram í sviðsljósið. Við höfum ávallt vegið og metið slík tækifæri af mikilli varfærni og yfirleitt forðast að gera það af ótta við að slík athygli yrði lituð af skoðunum annarra og gæti leitt til íþyngjandi ásóknar frá þeim sem sæktust eftir einhverju allt öðru en bata frá ástar- og kynlífsfíkn.
Félagsskapur okkar er fjölbreyttur hópur einstaklinga úr ólíkum áttum félagslega sem efnahagslega og af mismunandi kynþáttum og þjóðerni. Við spönnum líka alla breiddina horft út frá kynhneigð og því hvernig kynlífi við sækjumst eftir. En við höfum komist að raun um þá yndislegu staðreynd að ástar- og kynlífsfíknin eins hún birtist í þeirri persónulegu reynslu sem við deilum með hvert öðru er sameiningarband sem gerir að engu þá aðgreiningu vegna mismunandi kynhneigðar og kynferðislegra langana sem svo oft skapar gjá á milli fólks utan S.L.A.A.Um batann og hvernig hann birtist gætum við bætt að minnsta kosti jafn miklu við um hvert og eitt dæmi um hann í S.L.A.A. og hér hefur þegar verið sagt. Lítum á nokkur atriði, úr minni sögu og annarra. Í fyrsta lagi þá hef ég ekki dregist út í fíknarhegðun síðan batinn byrjaði, sem nú er farinn að telja nokkur ár. Í því felst að þessi ár hef ég verið algjörlega laus við botnhegðun í kynferðislegri og tilfinningalegri áráttu og þráhyggju. Fráhaldið þýddi oft mikla áreynslu og vaxtarverki, en þess á milli átti ég þægilegri kafla. Um það get ég aðeins talað um sem „kraftaverk“ í ljósi sögu minnar sem fíkils.
Að lýsa heilbrigðu sambandi fyrir fíkli sem er enn á valdi fíknarinnar er eins og lýsa litum fyrir blindum manni. En þó að ég hafi á sínum tíma engan veginn getað gert mér í hugarlund hvað í því fælist þá er heilbrigt samband orðinn órjúfanlegur hluti af mínu lífi í dag. Ég er ennþá giftur. Raunar eigum við Kata nú liðlega átta ára samband að baki síðan við ákváðum að taka upp þráðinn aftur og láta reyna á hvað við ættum með hvort öðru. Í dag þá eigum við skuldbindingu, traust og samvinnu, við deilum með hvort öðru og við eigum (ég þori að segja það) ást svo langt umfram það sem ég hefði getað látið mig dreyma um. Nú höfum við getuna til að lifa, vinna, leika okkur og þroskast saman. Mig óraði ekki fyrir því öll árin í fíknarkvalræðinu að ég ætti eftir að verða sáttur í hjúskap; en það er ég þó. Svarið við þessari gömlu spurningu „vil ég raunverulega vera hér?“ liggur nú ljóst fyrir.
Að greiða úr kynferðislegum og tilfinningalegum flækjum hefur tekið okkur bæði langan tíma, það hefur verið erfitt og oft niðurdrepandi. En sú vinna hefur skilað okkur miklum skilningi, auknu trausti og getunni til þess að upplifa raunverulega nánd hvort með öðru. Í tvígang höfum við sótt okkur aðstoð ráðgjafa um talsvert skeið til að koma málum upp á borðið á uppbyggilegan hátt í stað niðurrifs. Mér hefur þótt samband okkar gefandi, líka á erfiðu tímabilunum.
Við erum búin að eignast annar barn síðan við byrjuðum aftur saman og það hefur reynt mjög á okkur. Kannski er það kaldhæðnislegt en þrátt fyrir einbeittan ásetning um að giftast aldrei né eignast börn þá finnst mér, að í fráhaldi frá fíkninni standi ég mig sem eiginmaður og faðir (félagi og foreldri). Ég er ekki lengur undir harðstjórnarvaldi gömlu hugmyndanna um hlutverk eiginmanna og foreldra. Mér hefur lærst sjá og meta mína eigin getu. Börnin elska mig og óttast mig ekki.
Áskoranirnar og erfiðleikarnir sem fylgja því að byrja og viðhalda sambandi er nokkuð sem við tökumst æ oftar á við í samfélagi S.L.A.A. Að gera það andlega heilbrigð er nýtt fyrir okkur öll, frumherjana í S.L.A.A. Þau okkar sem hafa gengið í hjónaband hefur tekist að halda sig frá fíkninni. Við höfum ekki þurft að flýja það alvöru álag sem því fylgir með því að verða „ástfangin“ af einhverjum öðrum, eða sækja í kynferðislegt algleymi. Önnur hafa kosið sér að vera ein í langan tíma, lengur en fráhvörfin ein og sér kalla á, vegna þeirra innri auðlegðar sem við eignumst ein með sjálfum okkur.
Í öllum tilvikum þá hafa fráhvörfin gefið okkur djúpan skilning sem ekki hverfur frá okkur á verðleikum okkar sem manneskjur. Að skynja það innanfrá gefur okkur frelsi frá því að reyna að kreista það út úr öðrum, sem gengur hvort eð er aldrei upp.
Hvað sjálfan mig varðar þá hafa forsendur sambanda við aðra tekið algerum stakkaskiptum. Samskipti mín við aðra karlmenn voru áður lituð af tortryggni og samkeppni. Í virkri fíkn þá gekk ég út frá því aðrir sæktust yfirleitt líka eftir „ást“ og kynlífi. Því voru aðrir af sama kyni mögulegir mótherjar. Ennfremur sá ég þær sem ástríður mínar beindust að hverju sinni eingöngu út frá því hversu vel þær gátu svalað mínum þörfum. Hversu vel þær gátu það skilgreindi þær algjörlega. Þær voru tæki, ekki manneskjur.
Nú þegar ég er orðinn edrú í S.L.A.A er ég þess að aðnjótandi að hlusta á aðrar manneskjur af öllum kynjum og kynhneigðum tjá sig af dýpt og einlægni. Reynslan af fíkninni er sá þráður sem tengir okkur saman í SLAA og er svo miklu sterkari en mismunurinn vegna kynferðis og kynhneigðar sem aðskilur á meðal “venjulega” fólksins. Þegar við horfumst í augu við hana og skiljum þá verður sú reynsla sameiginlegur grundvöllur að nýju ævintýri sem snertir okkur djúpt, leitinni að tilgangi mannsandans. Líf okkar öðlast nýjan tilgang. Sum okkar leita inn á nýjan starfsvettvang gjörólíkan öllu því sem okkur hefði áður getað komið til hugar. Hinn nýi heilsteypti innri kjarni og sú mannlega reisn sem okkur hefur áskotnast er orðin sú mælistika sem við leggjum á það sem við tökumst á hendur. Okkur þykir eftirsóknarvert að víkka út sjálfsskilning okkar og leitumst eftir því á öllum sviðum lífs okkar að efla hann. Ekkert minna er nóg fyrir okkur.
Þessi mynd af hinum ýmsu hliðum bataferlisins er óhjákvæmilega takmörkuð og nokkuð handahófskennd. Látum nægja þau orð að við vonum að önnur sem föst hafa verið í klóm fíknarmynsturs svipuðu því sem hélt okkur í heljargreipum megi finna í frásögninni von um breytingar og hvatningu til að hafa samband við okkur og hefja sína eigin batagöngu. Ef þú ert eins og við ertu hugsanlega rétt í þann veginn að upplifa magnaða lífsreynslu og heilun. Megir þú þá þiggja með okkur náð guðs og endurlausn eins og við þekkjum hana í S.L.A.A. Við viljum fá þig með og þörfnumst þín.
Um þetta leyti byrjaði ég líka í námi sem fól í sér að vera tvær vikur í burtu á heimavist á sex mánaða fresti, ofan á strembið nám á eigin spýtur. Eftir að hafa hætt í skóla í alkóhólísku þokuskýi nokkrum árum áður með heitstrengingum um að koma ekki nálægt skóla aftur, þá var þetta veruleg áskorun. Þannig þurfti ég að takast á við báðar þessar breytingar, tilfinningavandamál okkar Kötu og námið, á sama tíma.
Skólinn var einstök og mikil reynsla. Skólinn lagði mikið upp úr því að hjálpa nemendum að skipuleggja sjálfstæð rannsóknarverkefni og fylgja þeim eftir. Kynferðislegar og rómantískar freistingar í þessum skóla voru svo svakalegar að mér var nauðugur einn sá kostur að skipuleggja námið út frá hugtakinu ástar- og kynlífsfíkn, að rannsaka fyrirbærið, lesa mér ítarlega til um það sem tengdist því og skrifa það sem ég gat um málefnið. Í hvaða mæli mátti nota líkön um efnamisnotkun um óefnatengda fíkn? Ég vissi þegar svarið hvað varðaði kynlíf og ást (tilfinningalega ánauð), en tækifærið til að rannsaka þetta svið allt á formlegan hátt var mér kærkomið. Hagnýtasti ávinningurinn af því að byrja þessa rannsókn var að óvenjulegt áhugasvið mitt varð almenn vitneskja í skólanum. Orðsporið (gott sem slæmt) sá mér fyrir ytri vörnum gegn því að fara í botnhegðun í skólanum.. Ef ég var að reyna að lýsa ástar- og kynlífsfíkn út frá hrikalegum afleiðingum hennar, með því að nota eigin reynslu sem dæmi, þá væri lítið vit í því að reyna hoppa upp í rúm með einhverjum eða hverfa inn í eitthvað rómantískt ævintýri. Ég gæti allt eins vel hengt mig. Þannig hjálpaði það mér til að vera edrú í skólanum að velja mér ástar- og kynlífsfíkn sem umfjöllunarefni og styrkti mig í því að nýta þetta tækifæri. Ég kom heim aftur endurnærður og fullur af eldmóði.
Í tveggja vikna fjarveru minni voru engir S.L.A.A. fundir. Greinlega var deildin fjarri því að vera sjálfbær á þessum tíma. Þegar ég kom til baka hafði ég samband við Jack og nokkra aðra og fundirnir hrukku í gang aftur, aðra hverja viku eins og áður. Um þetta leyti virtist Jack loksins vera að ná fyrir horn. Nokkur nýleg atvik utan fylkisins höfðu varpað skýru ljósi á hversu stjórnlaus kynferðisleg tilvera hans var. Hann áttaði sig á að hann vissi ekki hvað fólst í heilbrigðu sambandi sama hver átti í hlut. Hann leigði sér herbergi í nálægum bæ, fékk sér óskráðan síma og hafði langt í næstu stoppistöð. Hann hafði náð botni, var tilbúinn í fráhvörf og myndi ekki hrökkva.
Mér þótti þetta mjög uppörvandi og það fékk mig til að meta enn betur það sem ég hafði gengið í gegnum. Þegar ég horfði á Jack, þá trúði ég því varla að önnur manneskja myndi leggja það sama á sig. Á vissan hátt trúði ég því naumast sjálfur að ég hefði farið í gegnum fráhvörfin og komist heill í gegn.
